23. ágúst 2006 klukkan 17:14
Daginn!
Eva Berglind spurði í gestabókinni sem finna má hér til hliðar, af hverju vatnsglas? Á hún þar við hversvegna varð nafnið vatnsglas.bloggar.is fyrir valinu en ekki eitthvað annað.bloggar.is?
Veigar er búinn að svara henni eins og lesa má í gestabókinni einnig, en ég vil þó meina að skýringin sé önnur og mikið stærri! Að vísu er það rétt hjá Veigari að ég hafi veið að sötra á vatni úr glasi þegar hugmyndin skaut upp kollinum og það átti þónokkurn þátt í nafninu.
Hvað er betra en glas af íslansku, hreinu og köldu vatni?
Hvað er betra en að að lesa bloggið hjá Veigari, Sigurpáli og hinum?
Svarið við báðum þessum spurningum er einfallt myndi ég telja, EKKERT!!
Svo eru hér tveir punktsr sem eru einnig ástæðan fyrir þessari hugmynd:
* Eitt lítið vatnsglas getur bjargað mannslífi. Þar sem að líkaminn er að mestu leyti vatn, getur maðurinn ekki lifað nema ákveðið marga daga án vatns. Eftir þetta ákveðið marga daga án næringar og vatns getur eitt lítið vatnsglas gert kraftaverk. Í þessu dæmi geta Veigar og hinn verið vatnsglasið, þar sem Veigar er formaður bj.sv. Sigurvon og Hinn er þar í stjórn og því má allt eins búast við því að þeir þurfi að bjarga mannslífi einhvern daginn, rétt eins og vatnsglasið.
*bloggar.is bíður einungis uppá nafn sem sett er fram í eintölu. Því varð að finna eintthvað eintölu orð sem yrði flott fyrir framan bloggar.is. Hægt hefði verið að hafa fleirtöluorð ef endingin hefði verið blogga.is. En fleirtöluorð ættu að sjálfsögðu betur við á þessari síðu þar sem að við erum þrír en ekki aðeins einn einstaklingur með þessa síðu. Bloggar.is er mjög flott fyrir einstaklinga upp á nöfnin að gera, samanber einstaklingssíða mín, sigurpall.bloggar.is. Vatnsglas.bloggar.is fannst okkur bara flott og fyndið eintöluorð til að nota. Ég meina, hver býst við því að eitthvað vatnsglas sé að blogga?
Nóg um það í bili, skálum í vatn,
kv. Sigurpáll